Jólamatseðill Hótel Húsafells

Ljúffengur, og nútímalegur jólamatseðill í fallegu umhverfi

Hótel Húsafell mun verða með glæsilegan fjögurra rétta jólamatseðil og tilboð á gistingu frá 15. nóvember 2024 fram að jólum. Matseðillinn verður með nútímalegu yfirbragði.

Ein nótt á hótel Húsafelli í standard tveggja manna herbergi og fjögurra rétta máltíð af jólamatseðli ásamt morgunverði og aðgangi að Lindinni.

Verð: 63.690 fyrir tvo – eða 46.340 í eins manns herbergi.

Ein nótt á hótel Húsafelli í standard tveggja manna herbergi og þriggja rétta máltíð af jólaseðli ásamt morgunverði og aðgangi að Lindinni.

Verð: 56.090 fyrir tvo – eða 42.540 í eins manns herbergi.

Aukanótt er á 34.990 í tveggja manna herbergi eða 31.990 í eins manns herbergi.

Eigum nokkrar lausar dagsetningar í Nóvember og desember

Tilvalið er að kíkja í heimsókn til okkar á Húsafelli, gista og njóta fallegrar náttúru í afslappandi umhverfi. Hér geturðu sameinað notalega dvöl á þægilegu lúxushóteli, ljúffengan hátíðarmat og einstakar upplifanir í íslenskri náttúru. Við á Hótel Húsafelli leggjum mikið á okkur til þess að gera alla upplifun þína sem eftirminnilegasta.

Fyrir frekari upplýsingar og bókanir: info@hotelhusafell.is

Í nágrenni við Húsafell er að finna spennandi og ævintýralega afþreyingu í fallegu umhverfi eins og hægt er að fræðast um hér að neðan.

Íshellirinn

Búðu þig undir ævintýralega upplifun í návígi við mikilfengleik Langjökuls, næststærsta jökuls landsins. Það er einstök lífsreynsla að ferðast upp snjóhvítar hlíðar jökulsins og hverfa svo djúpt inn í manngerð ísgöngin sem leiða okkur að hinu bláa hjarta jökulsins. Ferðin er farin á sérútbúnum jöklafarartækjum, sem eru sérstaklega gerð til að skoða umhverfi jökulsins og njóta útsýnis meðan ekið er upp á topp jökulhettunnar. Reyndir leiðsögumenn sjá til þess að allir skemmta sér en öðlast um leið undirstöðuþekkingu á hegðun og náttúru jökla.

Ýttu hér til að bóka í íshellinn

Víðgelmir

Víðgelmir er stærstur allra hella á Íslandi og einn stærsti hraunhellir í heimi. Hellirinn hefur verið friðaður frá árinu 1993. Fjölbreytileiki hans og glæsileiki er engu líkur og heimsókn í hellinn er upplifun sem ekki gleymist. Tæplega 1600 metra langur hellirinn geymir ótrúlega liti og hraunmyndanir sem aðeins má sjá í iðrum jarðar.Boðið er upp á leiðsögn um hellinn, frá hvelfingu til hvelfingar, sem tekur eina og hálfa klukkustund.

Ýttu hér til að bóka í Víðgelmi

Giljaböðin

Í Giljaböðin eru skipulagðar ferðir með leiðsögn fjórum sinnum á dag frá Húsafelli. Að heimsækja böðin er ævintýri líkast. Böðin eru byggð úr náttúrusteini úr gilinu og í þau er veitt vatni úr heitum uppsprettum á staðnum. Mikið er lagt upp úr því að þau falli sem best inn í náttúruna en laugarnar eru byggðar í anda hinnar fornu Snorralaugar frá 10. öld. Baðhúsið er byggt úr timbri sem fallið hefur til á svæðinu. Jafnvel snagarnir í búningsklefunum eru gerðir úr notuðum hrossaskeifum frá nærliggjandi búi.

Ýttu hér til að bóka í Giljaböðin

Húsafell
Veitingastaðurinn