Húsafell er hlýlegur griðastaður sem er umvafinn fallegri náttúru
Hótel Húsafell verður með skemmtilegt páskatilboð þar sem við munum ekki einungis bjóða uppá 20% afslátt af gistingu þegar gist er dagana 7-10 apríl heldur einnig bjóðum við uppá 30% afslátt í Giljaböðin. Einnig munum við halda okkar skemmtilega, árlega páskabingó.
Þetta árið ætlum við að bjóða uppá páskaeggjaleit fyrir börnin sem inniheldur fullt af skemmtilegum glaðningum.
Bókaðu núna í bókunarvél okkar hér að neðan.
Verið velkomin á Húsafell.
Smelltu hér til þess að bóka tilboðið
Hótel Húsafell býður upp á 48 vel útbúin herbergi í fjórum stærðum. Öll herbergin eru reyklaus og skreytt með málverkum eftir Pál Guðmundsson, listamann á Húsafelli.
Á Húsafelli er að finna fjölbreytta afþreyingu við flestra hæfi. Hvort sem það eru gönguferðir í fallegri náttúru eða skipulagðar ferðir.
Giljaböðin á Húsafelli voru nýlega valin einn af 14 mest spennandi stöðum í heiminum að mati Culture trip. Skipulagðar ferðir eru í Giljaböðin með fjórum brottförum á dag sem farnar eru frá Húsafelli. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.
Viðgelmir er stærsti hraunhellir Íslands og er í næsta nágrenni við Húsafell. Það eru skipulagðar ferðir nokkrum sinnum í Víðgelmi. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.
Into the Glacier er með skipulagðar ferðir upp á Langjökul í manngerðan og stórbrotinn íshelli. Skipulagðar ferðir eru nokkrum sinnum á dag frá Húsafelli. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.
Smelltu hér til þess að bóka tilboðið