

Ferðaþjónustan
Húsafelli - Húsafell - 311
Borgarnes -
Sími: (+354) 435 1550/562 1553 - Fax: (+354) 435 1551
E-mail:
husafell@husafell.is
Reykholt
Reykholt
í Borgarfirði er eitt af fornum höfuðbólum Íslands
og menningarsetur í fortíð og nútíð.
Saga Íslands tengist Reykholti og einn þekktasti rithöfundur
Íslendinga er sagnaritarinn og skáldið SNORRI STURLUSON
(1179-1241). Hann var einnig höfðingi mikill, stjórnmálamaður
og talinn einn auðugasti maður Íslands á Sturlungaöld.
Snorri skrifaði Heimskringlu, sögu Noregskonunga, Eddu ómetanlegar
heimildir um norræna goðafræði og kveðskap. Meðal
elstu varðveittra mannvirkja á Íslandi er Snorralaug og
stokkar sem veita vatni í hana úr hvernum Skriflu. Í
Snorrastofu er unnið að rannsóknum og kynningu í miðaldafræðum
og sögu Borgarfjarðar. Heimskringla annast móttöku
gesta og veitir þjónustu og fræðslu, m.a. um sögu
Reykholts.