

Ferðaþjónustan
Húsafelli - Húsafell - 311
Borgarnes -
Sími: (+354) 435 1550/562 1553 - Fax: (+354) 435 1551
E-mail:
husafell@husafell.is
Hraunfossar og Barnafoss
Hraunfossar
og Barnafoss eru falleg og sérstæð náttúrufyrirbæri
og þangað leggur fjöldi ferðamanna leið sína
til að skoða þessar stórkostlegu náttúruperlur.
Hraunfossar eru tærar og kaldar lindir sem koma undan hrauninu og
renna í fossum og flúðum niður í Hvítá.
Barnafossinn sjálfur hefur verið að breytast í manna
minnum en áin hefur grafið sig niður úr hrauninu og
rennur í djúpu og þröngu gljúfri. Áður
fyrr var steinbogi yfir fossinn sem var samgönguleið á milli
Hálsasveitar og Hvítársíðu. Um nafngiftina
á Barnafossi er eftirfarandi saga :
Einu sinni bjó ekkja í Hraunsási.
Hún var efnuð vel og meðal annars átti hún
Norðurreyki í Hálsasveit. Tvö börn átti
hún. Voru þau komin á legg, er saga þessi gerðist.
Eitt sinn átti að halda aftansöng á jólanótt
á Gilsbakka. Þangað fór Hraunsáskonan með
allt sitt fólk, að undanskildum börnunum tveim. Þau
áttu að leika sér heima við. Tunglskin var og blítt
veður. Þegar fólkið kom heim voru börnin horfin.
Spor þeirra lágu að steinboganum á ánni.
Lét þá móðir þeirra höggva bogann
niður með þeim ummælum að yfir Barnafoss skyldi
enginn maður komast lífs af um aldur og ævi. En í
minningu um börnin gaf hún Reykholtskirkju Norðurreyki.
(Kristleifur Þorsteinsson II (1972) Hvítá.276).