Húsafell er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin, skógurinn, heitar laugar og sú aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn, sem þar hefur verið komið upp
á undanförnum árum, laðar til sín fjölda ferðamanna og dvalargesta á hverju ári.
Upplýsingar
LEIKHÓPURINN LOTTA SÝNIR GLÆNÝTT ÍSLENSKT LEIKRIT UM MJALLHVÍT OG DVERGANA SJÖ
Hátíðarlundur í Húsafelli laugardagana 9. og 30. júlí klukkan 17. Miðaverð á sýninguna er einungis 1.500 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn.
VARÐELDUR 2011
Á hverjum laugardegi, frá miðjum júní fram í ágúst verður tendraður varðeldur í Hátíðarlundi kl:21:00.
Þá sér Eyjólfur Kristjánsson um sönginn.
NETSAMBAND
Komið hefur á netsambandi í og við Þjónustumiðstöðina. Heitt svæði á vegum emax.
GESTABÓK
Nokkrir sumarhúsaeigendur hafa komið
fyrir gestabók upp með Bæjargili að
vestanverðu. Um 20 mín. gangur frá
kvíunum.
VEIÐILEYFI/SILUNGUR
Hólmavatn s: 894 0325
Arnarvatnsheiði s: 862 7957
VEIÐILEYFI/LAX
Norðlingafljót
Upplýsingar í síma 771 6353
Við hvetjum alla til þess að kynna sér umgengnisreglurnar, áður en lagt er af stað.
Gönguleiðir
Ótal góðar gönguleiðir eru um Húsafelllsland og er sérstök ástæða til að hvetja menn til að hressa sig og styrkja með því að kanna bæði láglendið, gilin og fjöllin. Hægt er að fara langt eða stutt, bratt eða slétt eftir getu hvers og eins.
Sjá gönguleiðakort.
Ferðaþjónustan Húsafelli ehf, kt 660390-1039, sími: 435-1553, husafell@husafell.is
Þjónustumiðstöðin Húsafelli ehf, kt 430203-3550, sími: 435-1550, info@husafell.is
Söguganga um Húsafell
Sett hafa verið 10 fræðsluskilti um söguminjar Húsafells. Tilvalin um klukkutíma leið fyrir alla fjölskylduna til að kynna sér sögu staðarins.
Sjá gönguleiðakort.

Hér má finna veðurspána fyrir Húsafell.


SUMARIÐ 2011
FÖLSKYLDUDAGSKRÁ
Sjá hér
Gönguleiðir
Ótal góðar gönguleiðir eru um Húsafelllsland og er sérstök ástæða til að hvetja menn til að hressa sig og styrkja með því að kanna bæði láglendið, gilin og fjöllin. Hægt er að fara langt eða stutt, bratt eða slétt eftir getu hvers og eins.
Sjá gönguleiðakort.