



Sumarhúsin í Stórarjóðri 1 og 4 eru í eigu Þjónustumiðstöðvarinnar í Húsafelli og eru leigð almennri leigu. Yfir sumarmánuði er leigt í
eina viku í senn en á veturna er helgarleiga og /eða vikuleiga.
Þjónustumiðstöðin Húsafelli ehf sími 435-1550, info@husafell.is
Húsin eru mjög hefðbundin 6 manna hús, eitt hjónaherbergi, barnaherbergi með koju og lítið svefnloft (barnaferðarúm í hjónaherbergi).
Baðherbergi með sturtu, eldhús og stofa.
Borðbúnaður er fyrir 12 manns.
Sjónvarp, útvarp og örbylgjuofn (ekki uppþvottavél eða þvottavél).
Í sundlaug og í verslun er hægt að fá aðgang að þvottavél gegn gjaldi.
Á verönd við húsin eru heitir pottar, borð og stólar.
Kolagrill á verönd.
Í húsunum eru 6 sængur og koddar, hægt er að leigja lín í verslun. Tuskur og hreinsiefni fylgja leigu.
Verðskrá 2010
| 1 vika júní, júlí, ágúst | 55.000 kr. |
| Helgarleiga þrjár nætur maí og september | 25.000 kr. |
| Helgarleiga þrjár nætur október t.o.m apríl | 20.000 kr. |
Leigjendur eru í húsunum á eigin ábyrgð en við viljum vekja athygli á eftirfarandi umgengnisreglum:
1. Reykingar eru ekki leyfðar í húsunum.
2. Gangið um húsgögn og húsbúnað eins og heima hjá ykkur.
3. Farið varlega með kerti
4. Heitu pottana verður að umgangast af varúð –Setjið allfaf lokið á eftir notkun –Passa vel hitastig vatns - Hafið alltaf eftirlit með börnum í og við pottana.
5. Að dvöl lokinni ber að skila húsinu og húsmunum hreinu og öllum húsbúnaði.
6. Hreinsa grill. Hreinsa heita pottinn.
7. Allt rusl á að fara í ruslagáma. (staðsettir á vinstri hönd á leið út af svæðinu)
8. Hundar og önnur gæludýr eru ekki leyfð í húsunum.