
Verðskrá 2010
| SUMAR | |
|---|---|
| Uppábúið 2 manna herb. án baðs ásamt morgunv. | 11.900 kr. |
| Uppábúið 2 manna herb m/baði ásamt morgunv. | 12.900 kr. |
VETUR |
|
| Svefnpokagisting | 2.800 kr. pr.mann |
Gamli bærinn á Húsafelli er frá árinu 1908 og var íbúðarhús ábúenda á Húsafelli fram til ársins
1964 . Árið 1996 var húsið endurreist af Kristleifi Þorsteinssyni og Sigrúnu Bergþórsdóttur og
rekstur gistiheimilis hófst. Við endurreisn hússins var leitast við að varðveita upphaflega mynd
þess og virðingu við sögu hússins gætt.
Steinunn og Sæmundur gsm: 895 1342, sveitasetrid@simnet.is
Gamli bærinn er á þremur hæðum, á neðstu hæð er eldhús, borðstofa, salerni og setustofa.
Á annari hæð eru þrjú tveggja manna herbergi og þrjú baðherbergi. Á efstu hæð hússins eru
tvö tveggja manna herbergi og eitt baðherbergi.
Á verönd við húsið er heitur pottur.


Árið 2007 fóru aftur fram endurbætur á húsinu og byggð við forstofa á jarðhæð og húsgögn endurnýjuð.
Á sumrin eru herbergin leigð með morgunmat og þá mest í gegnum Ferðaþjónustu bænda.
Erlendir gestir hússins eru flestir ánægðir og finna sögu lands og þjóðar í hverri fjöl.
Á veturna er leigan með öðru móti, ýmist uppábúin rúm eða svefnpokapláss en þá alltaf án morgunverðar.
Hópar sem sækjast eftir útivist s.s. gönguferðum, veiði ofl. hafa verið tíðir gestir